Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Gnoðarvogur 34 , 104 Reykjavík (Vogar)
58.700.000 Kr.
Fjölbýli
2 herb.
62 m2
58.700.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1958
Brunabótamat
33.400.000
Fasteignamat
53.100.000
Opið hús: 17. júní 2026 kl. 13:00 til 13:30.

Opið hús: Gnoðarvogur 34, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 02 02. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 17. júní 2026 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.

Heimir Bergmann, löggiltur fasteignasali, og Domusnova kynna í einkasölu: Glæsileg og mikið endurnýjuð 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í vel viðhöldnu fjölbýlishúsi á afar vinsælum stað. Íbúðin hefur fengið mikla yfirhalningu að innan og húsið sjálft hefur verið í sérlega góðu viðhaldi.
Sérstakt tækifæri – Tilbúin til innflutnings! Athygli er vakin á því að möguleiki er á að öll húsgögn fylgi með í kaupunum. Þetta er afar fágætt á íslenskum fasteignamarkaði og gerir eignina að sannkallaðri draumaeign fyrir fyrstu kaupendur sem vilja spara sér mikil útgjöld við búslóðarkaup, eða fyrir þá sem leita að eign sem er algjörlega tilbúin til útleigu. Hér er bókstaflega hægt að mæta með tannburstann og flytja beint inn!


Íbúðin skiptist í forstofu/hol, stofu og borðstofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Sérgeymsla er í kjallara ásamt rúmgóðu sameiginlegu þvotta- og þurrkherbergi. Nýtt, fljótandi harðparket er á öllum gólfum, að undanskildu baðherberginu sem er flísalagt.
Nánari lýsing:
Forstofa/hol: Bjart og snyrtilegt með góðu fatahengi og nýju harðparketi.
Stofa og borðstofa: Rúmgóð og björt með nýju harðparketi. Þaðan er útgengt á notalegar vestursvalir.
Eldhús: Vel skipulagt og bjart með skemmtilegum borðkrók við glugga. Eldhúsinnréttingin var endurnýjuð nýlega (hliðar og hurðir sprautulakkaðar). Ný uppþvottavél fylgir.
Svefnherbergi: Rúmgott og þægilegt með fataskáp og nýju harðparketi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Þar er baðkar með sturtuaðstöðu, gluggi sem gefur góða birtu og loftun, ásamt tengi fyrir þvottavél. Glæný baðinnrétting hefur nýlega verið sett upp.
Sameign og geymsla: Í kjallara er sérgeymsla sem fylgir eigninni, auk rúmgóðs sameiginlegs þvottahúss og þurrkherbergis. Við húsið er stór og gróinn sameiginlegur garður.
Gott viðhald og nýlegar framkvæmdir: Fjölbýlið hefur fengið mjög gott viðhald undanfarin ár. Helstu framkvæmdir eru m.a.:
2026: Ný gólfefni og innihurðir í íbúð. Eldhús yfirfarið og sprautulakkað. Ný baðinnrétting sett upp.
2025–2026: Endurnýjun á frárennslislögnum og stömbum innanhúss (framkvæmdir yfirstandandi).
2024: Anddyri hússins flísalagt.
2023: Stigagangur málaður og skipt um teppi.
2018: Viðamiklar utanhússviðgerðir; þakjárn, pappi og rennur endurnýjaðar. Múrviðgerðir á húsinu og það málað að utan. Bílaplan lagfært og malbikað ásamt því að skipt var um frárennslislagnir utanhúss.
Umhverfi og staðsetning: Eignin er fullkomlega staðsett alveg við hliðina á grænu svæðum Laugardalsins, með iðandi mannlífi, sundlaug, íþróttasvæðum og fallegum gönguleiðum.
Leikskólar og skólar eru í næsta nágrenni, og stutt er í alla helstu verslun og þjónustu í Skeifunni. Frábært net af hjóla- og gönguleiðum í allar áttir.

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun: Heimir Bergmann, löggiltur fasteignasali. Sími: 630-9000 Netfang: [email protected]



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.