Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Hraunvegur 4 , 851 Hella
74.900.000 Kr.
Sumarhús
4 herb.
140 m2
74.900.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2017
Brunabótamat
80.850.000
Fasteignamat
45.850.000

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:

Virkilega fallegt og vel við haldið sumarhús með mikilli fjallasýn í landi Leirubakka í Rangárþingi Ytra.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / [email protected]

Helstu upplýsingar:
*heilsárshús, byggt 2017.
*141 fm að stærð, þar af eru 39 fm bílskúr.
*að auki er nærri 50 fm loftrými, sem ekki er skráð í birtum fermetrum.
*þrjú rúmgóð svefnherbergi.
*rúmgóð forstofa með fataskápum.
*baðherbergi með sturtu, wc, innréttingu með vaski.
*gestasnyrting með þvottavél og þurrkara.
*bjart alrými með stofu/borðstofu.
*eldhús opið að hluta til við alrýmið.
*uppþvottavél, helluborð og bakaraofn.
*innbú fylgir allt með utan persónulegra muna.
*útgengt er á sólpall úr eldhúsi og um aðalhurð.
*stór rafmagnsheitapottur
*39 fm bílskúr.

Húsið hvílir á 6500 fm eignarlóð úr landi Leirubakka í skipulagðri frístundahúsabyggð Fjallaland.

Eignin er kynnt með vatn í vatn varmadælu og gólfhiti er undir flísum í gólfinu.

Skipulögð sumarhúsabyggð er á þessu svæði, árgjald félagsins 2025 var 25.000 kr.

Tekur u.þ.b. 1,5 klst að keyra af höfuðborgarsvæðinu og er hægt að sækja alla helstu þjónustu á Hellu sem er um 30 min akstursfjarlægð.

Mikil og falleg víðsýni er til fjalla og jökla, Ytri-Rangá rennur með landamörkum Fjallalands og stutt að sækja t.d. inn á miðhálendið á þessu svæði.

Pöntun á skoðun og nánari upplýsingar fást hjá:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: [email protected]


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.






 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.