Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Skógarbrekkur 6 , 320 Reykholt í Borgarfirði
51.900.000 Kr.
Sumarhús
2 herb.
68 m2
51.900.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2002
Brunabótamat
51.450.000
Fasteignamat
43.600.000

Fallegur sumarbústaður í Húsafelli 

Domusnova og Stefán löggiltur.fasteignasali kynna: Skógarbrekkur 6, Húsafelli. Falleg hús byggt 2002
Um er að ræða 68 fm hús á tveimur hæðum vel staðsett miðsvæðis í Húsafelli stendur á
5.000 fm leigulóð, kjarri vaxin. Vönduð eign sem að hefur fengið gott viðhald.

Nánari lýsing
Anndyri
er með dúk á gólfifatahengi er við innganginn af anddyri er geymsla/þvottahús.
Stofa og eldhús 
mynda opið og bjart alrými útgengt á sólpall að framanverðu. frá stofu er gengið upp á rúmgott svefnloft með góðri lofthæð.
Baðherbergi, dúkur á gólfi, sturta, vaskskápur, hillur, dyr út á sólpall.   
Svefnherbergi eru tvö, annað þeirra er með koju. Fataskápur er á gangi framan við svefnherbergi.
Veröndin umlyggur húsið, heitur pottur. Hitaveita og ljósleiðari.
Hús er kynnt með hitaveitu. Tengi fyrir rafbíl 9 kv. Hluti innbús getur fylgt með, allt eftir nánara samkomulagi.
Fjarlægð frá Reykjavík er 130 um km, 71 km á Akranes og 65 km. í Borgarnes.

Almennt um Húsafell:
Húsafell er meðal fjölsóttustu ferðamannastaða hér á landi, enda einstök náttúruperla í stórkostlegu landslagi. Veðursældin,skógurinn, heitar laugar og sú aðstaða og þjónusta fyrir ferðamenn, sem þar hefur verið komið upp á undanförnum árum, laðar til sín fjölda ferðamanna og dvalargesta á hverju ári. Húsafellsskógur er lágvaxinn birkiskógur á hrauni sem hefur myndast fyrir landnám. Vilja kunnugir meina að dalbotninn í Húsafelli sé einn af veðursælustu stöðum landsins. Húsafell er ríkt af auðlindum, bæði heitu og köldu vatni sem gerir staðinn góðan til búsetu og orlofsbyggðar.
Öll helsta þjónusta er á staðnum, veitingastaður, strandblakvöllur, sundlaug og þjónustumiðstöð. Á svæðinu eru sérlega fallegar gönguleiðir og stutt í náttúruperlur eins og Langjökul, Arnarvatnsheiði, Hraunfossa, Barnafossa og einnig er á staðnum 9 holu glæsilegur golfvöllur. Á sumrin eru gjarnan kvöldskemmtanir með varðeldi og lifandi tónlist á laugardagskvöldum. Á svæðinu er glæsilegt tjaldstæði með aðgengi að sturtum, salerni, þvottahúsi og rafmagni.
Húsafell er paradís fyrir sumarbústaðaeigendur jafnt að sumri og vetri. Allt almennt þjónustustig er stöðugt að aukast á svæðinu.
Rekstrarkostnaður:
  • Fasteignagjald 2026  um kr. 215.000 per ár
  • Lóðaleiga 2026  um kr. 290.000 per ár
  • Hitaveitukostnaður (neysluvatn og kynding) per mánuð er um kr. 20.000,-. 
  • Rafmagnkostnaður per mánuð er um kr. 9.000,-
Nánari upplýsingar má sjá á heimasíðunni www.husafell.is og facebook síðu Húsafells.

Nánari upplýsingar veitir:
Stefán sími 896-9303, [email protected]


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.