Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Kirkjuvellir 8b , 221 Hafnarfjörður
76.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
108 m2
76.900.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2018
Brunabótamat
64.000.000
Fasteignamat
75.250.000

Domusnova fasteignasala kynnir til sölu Kirkjuvelli 8b. Fallega og vel skipulagða 4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi, palli og gluggum í fjórar áttir. Íbúðin er skráð 108,2fm og þar af er geymsla í sameign 7,7fm. Kirkjuvellir 8b eru vel staðsettir nánast fremst á Völlunum.

**Sérinngangur. 
**Sérafnotareitur út frá stofu. 
**Sér þvottahús.
**Hleðsla fyrir rafmagnsbíla.
**Næg bílastæði.


Lýsing eignar:
Forstofa: Komið inn um sérinngang, þægilegt aðgengi. Flísar á gólfi og tvöfaldur fataskápur ásamt plássi fyrir fatahengi
Eldhús: Stílhrein ljós innrétting, mjög gott skápa-, borðpláss. Bakaraofn í vinnuhæð og stæði fyrir uppþvottavél. Mjúklokun á skápum og skúffum. 
Stofa/borðstofa: Flæða saman í opnu rými í tengingu við eldhúsið. Gluggar á tvo vegu og útgengt út á góðan pall sem snýr vel gagnvart sólu.  
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Falleg innrétting með góðu skápaplássi. Baðkar með sturtuaðstöðu. Handklæðaofn og upphengt salerni.
Þvottahús: Fallegar flísar á gólfi. Mjög góð innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Skolvaskur er í þvottahúsi. 
Herbergi I: Hjónaherbergið er 13,1m2 með sexföldum fataskáp. Parket á gólfi. 
Herbergi II: 8,7m2 með tvöföldum fataskáp og parket á gólfi. 
Herbergi III: 8,6m2 með tvöföldum fataskáp og parket á gólfi. 
Gólfefni: Fallegt ljóst paket er á íbúðinni. Í anddyri, baðherbergi og þvottahúsi eru fallegar ljósgráar flísar. 

Geymsla: Í sameign er góð geymsla 7,7m2 og í henni eru hillur sem geta fylgt með kaupunum. 
Rúmgóð hjólageymsla í sameign. 
**Húsið var byggt árið 2018 af traustum byggingaraðila (Fjarðarmót ehf). 

Nánari upplýsingar veita:
Andri Hrafn Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.698-2127 / [email protected]
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.