Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Reynimelur 82 , 107 Reykjavík (Vesturbær)
63.900.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
69 m2
63.900.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1967
Brunabótamat
37.250.000
Fasteignamat
55.000.000
Opið hús: 18. mars 2026 kl. 18:00 til 18:30.

Opið hús: Reynimelur 82, 107 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 00 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 18. mars 2026 milli kl. 18:00 og kl. 18:30.

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:

Virkilega fallega og mikið endurnýjaða íbúð með tveimur svefnherbergjum á jarðhæð við Reynimel í Reykjavík.

Eignin getur verið afhent u.þ.b. 35-40 dögum eftir kaupsamning.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 /
[email protected]

Nánari lýsing eignar:
Gengið er inn á gang sem tengir öll herbergi eignarinar saman. Fataskápur er á gangi og innst er baðherbergi eignarinnar, flísalagt á gólfi og veggjum, innrétting með vaski, þröskuldarlaus sturta og upphengt wc. Tvö góð svefnherbergi og fataskápar í báðum. Eldhús er í sér rými, innrétting á gagnstæðum veggjum, pláss fyrir einfaldan ísskáp, innbyggð uppþvottavél og borðkrókur innst við gluggann. Stofan/borðstofan er rúmgóð og björt. Parket á öllum gólfum utan votrýma. Geymsla er beint á móti íbúð undir stiga og aðgengi að sameiginlegu þvottahúsi og hjóla-/vagnageymslu er aðeins fáein skref frá inngangi íbúðar. Virkilega falleg íbúð á jarðhæð í góð fjölbýli.

Helstu upplýsingar um endurbætur íbúðar, mest fór fram 2019, sumt síðustu ár.:
  • Búið er að skipta um alla glugga og gler.
  • Nýleg eldhúsinnrétting ásamt nýlegu parketi á öllum gólfum.
  • Baðherbergi hefur verið endurnýjað.
  • Nýlegir fataskápar í herbergjum og gangi.
  • Innihurðir allar setta nýjar.
  • Ný brunahurð inn í íbúðina, 2024.
  • Blöndunartæki sett ný og hluti raf- og pípulagna.
Helstu upplýsingar um endurbætur á sameign:
  • Klárað að klæða húsið, síðasti áfangi kláraðis 2022.
  • Þakið verður endurnýjað á komandi sumri 2026.
Pöntun á skoðun og nánari upplýsingar:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: [email protected]


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.