Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Hafnarstræti 99-101 (201) , 600 Akureyri
69.900.000 Kr.
Atvinnuhús/ Skrifstofuhúsnæði
0 herb.
96 m2
69.900.000 Kr.
Stofur
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
3
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1939
Brunabótamat
46.800.000
Fasteignamat
24.950.000

Eign á besta stað á Akureyri við göngugötuna með tveimur íbúðum.

Domusnova fasteignasala hefur til sölu eign sem skipt hefur verutvær íbúðir á besta stað í miðbæ Akureyrar. Um er að ræða eign 02-01 sem er 96,1 fm. skrifstofuhúsnæði í einstaklega glæsilegu húsi að Hafnarstræti 99-101, við göngugötuna á Akureyri sem hefur verið innréttað á smekklegan hátt í tvær íbúðir, hvor með einu svefnherbergi á 2. hæð. Á jarðhæð hússins eru verslanir en á efri hæðum íbúðir, skrifstofur og ýmisskonar rekstur. Sameignlegur inngangur, sameiginlega stórar þaksvalir og sameiginlegt þvottahús með tveimur öðrum íbúðum. Staðsetning eignanna er vinsæl og eftirsótt þar sem stutt er í allt og flest er í göngufæri.

Lýsing:
Um er að ræða 96,1 fm sem er skipt upp í gang og tvær íbúðir. Sameiginlegt salerni við enda gangs og sameiginlegt þvottahús/geymsla með annarri íbúð. Sameiginlegur inngangur, gengið er inn götumegin upp á 2. hæð. Sameiginlegar stórar þaksvalir sem gengið er út á beint af hæðinni.

Íbúð 1 -  Alrými sem skiptist í stofu og eldhús, svefnherbergi og baðherbergi.
Forstofa: Komið er inn í opið rými. Harðparket á gólfi.
Stofa: Björt stofa sem snýr að göngugötu. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Snyrtilega dökka innréttingu og ljósri borðplata með marmaraáferð. Flísar á milli efri og neðri skápa. Bakaraofn og helluborð (f. tvær hellur). Ísskápur. 
Svefnherbergi: Tvöföld kommóða. Veggþiljur á einum vegg. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Er innan herbergis. Hvít innrétting með handlaug. Spegill fyrir ofan innréttingu. Vegghengt salerni. Walk in sturta. Þvottavél. Flísar á gólfi og kringum sturtu.

Íbúð 2  Alrými sem skiptist í stofu og eldhús, svefnherbergi og baðherbergi.
Forstofa: Komið er inn í opið rými. Parket á gólfi.
Stofa: Björt stofa sem snýr að göngugötu. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Snyrtilega ljós innréttingu og dökkri borðplötu. Bakaraofn og helluborð (f. tvær hellur). Ísskápur. 
Svefnherbergi: Stórt herbergi með hjónarúmi og koju. Dúkur á gólfi
Baðherbergi: Baðherbergi er með sturtuklefa, hvítri innréttingu og vegghengdu salerni. Flísar á gólfi

Allt innbú fylgir með í kaupum.
Vakin er athygli á að til sölu er önnur 2ja herb. íbúð í sama stigagangi á sömu hæð sem er í eigu sama aðila. Miklir tekjumöguleikar ef leitast er eftir leigueignum á vinsælum stað, í miðbæ Akureyrar.

Nánari upplýsingar veita:
Sjöfn Hilmarsdóttir, löggiltur fasteignasali / s.691 4591 / [email protected]
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.