Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Vesturbraut 6 , 370 Búðardalur
19.900.000 Kr.
Atvinnuhús/ Verslunarhúsnæði
0 herb.
70 m2
19.900.000 Kr.
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2001
Brunabótamat
15.200.000
Fasteignamat
2.970.000

Domusnova Borgarnesi kynnir til sölu eignina Vesturbraut 6, Búðardal, 70 fm. atvinnuhúsnæði við aðalgötuna þar sem nú er rekið kaffihús og blómaverslun.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Sjöfn Hilmarsdóttir, lgf., s. 691-4591 // 
[email protected]

Vesturbraut 6 er 70,0 fm. atvinnuhúsnæði sem stendur á 445,0 fm. viðskipta- og þjónustulóð við aðalgötuna í Búðardal. Húsið er 30,8 fm. timburhús sem flutt var á staðinn árið 2001, farið var í stórar framkvæmdir árið 2017 þegar húsið var stækkað um ca. 40 fm., eldri hluti endurbyggður og innra skipulagi breytt svo húsið myndi heild. Eignin skiptist í eitt stórt rými, tvö salerni og eldhús. Tveir inngangar. Timburverönd. Bílastæði fyrir aftan hús.

Helstu framkvæmdir árið 2017:
- Eldri bygging endurbyggð samhliða stækkun hússins
- Tvöföld einangrun í gólfi
- Þak endurnýjað í heildsinni, nýir bitar, einangrun, dúkur, klæðning á þak. 
- Gluggar og gler endurnýjað (utan tveggja glugga) 
- Ný útidyrahurð að framan
- Vatnslagnir endurnýjaðar, allar utanáliggjandi.
- Rafmagn endurnýjað, utanáliggjandi (tekið út af frumherja).

Frágangur klæðningar að utan er eftir að hluta og í kringum glugga. Unnið er að fá uppfærða skráningu á stærð hússins hjá þar til bærum aðilum.

Hér er gott tækifæri fyrir réttan aðila til að nýta þá mörgu möguleika sem þessi eign býður upp á.

Nánari upplýsingar veita:
Sjöfn Hilmarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.691 4591 / [email protected]
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.