Eignir í sölu hjá Domusnova

Hér finnur þú allar fasteignir sem eru í sölu hjá Domusnova, þar á meðal íbúðir, einbýlishús, raðhús og atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Notaðu leitarsíuna til að finna fasteign sem hentar þínum þörfum og skoðaðu nýjustu eignir á markaðnum.

Krummahólar 10 , 111 Reykjavík (Efra Breiðholt)
52.700.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
71 m2
52.700.000 Kr.
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1977
Brunabótamat
34.800.000
Fasteignamat
47.300.000

Domusnova fasteignasala og Bergþóra Lárusdóttir lgf. kynna sérlega fallega tveggja herb. íbúð á þriðju hæð merkt 304 í góðu lyftuhúsi með yfirbyggðum svölum og fallegu útsýni við Krummahóla 10. 

***Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning***

Eignin var endurnýjuð að stórum hluta árið 2022 og má þar nefna:
-Nýtt harðparket á alrými, svefnherbergi og forstofu.
-Nýjar innihurðir.
-Baðherbergi endurnýjað.
-Eldhús endurnýjað að stórum hluta m.a ný tæki.
-Klæðning á svölum að innan (15m3 lokaðar svalir).
Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Nánari lýsing:

Forstofa: Björt forstofa með harðparketi á gólfi.
Hol: Gott hol með rúmgóðum fataskáp.
Eldhús: Hefur verið endurnýjað að stórum hluta m.a ný tæki, nýr háfur yfir eldavél og innbyggð uppþvottavél. Innaf eldhúsi er þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara og góðu hilluplássi.
Stofa: Rúmgóð með stórum gluggum sem hleypa góðri birtu inn í rýmið. Frá stofu er gengið út á 15.fm yfirbyggðar suðursvalir með fallegu útsýni.
Svefnherbergi: Er bjart og rúmgott.
Baðherbergi: Var endurnýjað árið 2022. Ný sturta ("walk in shower"), upphengt salerni, ljós viðarlituð innrétting og ljósar flísar á veggjum og gólfi.
Þvottahús: Er innaf eldhúsi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara og góðar geymsluhillur.
Geymsla: Sér geymsla á fyrstu hæð fylgir eigninni.
Hjóla- og vagnageymsla: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á fyrstu hæð. 
Bílastæði: Sérmerkt stæði á bílaplani fylgir eigninni.

Annað:
- Lyftan í húsinu var endurnýjuð árið 2019.
- Húsfélag á íbúð sem er í útleigu og gefur tekjur í húsfélagssjóð. Inneign í sjóðnum er um 17 mkr.
- Þakkantur yfirfarinn og málaður árið 2021.
- Þak yfirfarið og málað fyrir nokkrum árum.

Um er að ræða vel skipulagða eign á besta stað í Breiðholtinu þar sem örstutt er í leik-, grunn- og framhaldsskóla, einnig er stutt í líkamsrækt, sundlaug, verslun og alla helstu þjónustu. 
Þetta er eign sem vert er að skoða!

Nánari upplýsingar veita:
Bergþóra Lárusdóttir löggiltur fasteignasali / s.8953868 / [email protected]
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.