Domusnova á Akranesi og Soffía Magnúsdóttir lögg. fasteiganasali kynna: Suðurgötu 93, Akranesi.
Staðsett miðsvæðis í bænum, skammt frá Sementsreitnum. Stutt í alla helstu þjónustu, ss. skóla.
Útivistarperlan Langisandur er í næsta nágrenni. Björt og falleg nýbygging í fjögurra íbúða húsi á 2 hæðum og risi.
Hæð 82,5 fm og ris 71,4 fm. samtals 153,9 fm.
Steypt bílastæði.Íbúðin er fullbúin og til afhendingar strax.Hæð: Sér inngangur á annarri hæð.
Forstofa með fataskáp.
Hol, þaðan er stigi uppí risið.
Svefnherbergi með góðum skápum.
Góð
stofa, dyr útá
svalir. Baðherbergi með flísar á gólfi og veggjum, innréttingu og sturtu. Þvottaaðstaða: Tengi fyrir þvottavél og þurrkara, innrétting.
Ris: Stigi uppí ris með teppalögðum þrepum.
Stórt opið
samveruherbergi, dyr útá
svalir. 2 stór svefnherbergi með góðum skápum.
Baðherbergi með innréttingu og baðkari. Tengi fyrir þvottavél. Flísar á gólfi og kringum baðkar.
Gólfefni:Vinilparekt á gólfum, nema í baðherbergjum, þar eru flísar.
Nánari upplýsingar veitir:
Soffía Sóley Magnúsdóttir löggiltur fasteignasali [email protected] / sími 846-4144Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða
greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.