Krossvellir 2 , 300 Akranes
78.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
128 m2
78.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2021
Brunabótamat
69.400.000
Fasteignamat
61.600.000

Domusnova og Soffía Sóley lögg. fasteignasali kynna:   Krossvelli 2, Hvalfjarðarsveit  ÍBÚÐ MEÐ BÍLSKÚR 

SKIPTI MÖGULEG Á DÝRARI EIGN.


Glæsileg efri hæð með sér inngangi ásamt bílskúr í tveggja hæða fjölbýlishúsi.
Fallegt útsýni til sjávar.

Þriggja herbergja íbúð (95,5 fm)  bílskúr (32.5 fm), svalalokun og hjólageymsla.

Sameiginlegar útitröppur með íbúðinni við hliðina.
Forstofa, flísar á gólfi, skápur.
Stofa, eldhús, borðstofa og herbergi eru með samfelldu parketi
Eldhús er með hvítir innréttingu, límtré á borðum, uppþvottavél, helluborð með innbyggðri viftu, 2 bakarofnar, uppþvottavél fylgir, dyr útá  yfirbyggðar hellulagðar svalir. 
2 svefnherbergi
með góðum skápum.
Baðherbergi/ þvottherbergi,  flísalagt gólf og veggir, sturta, góðar innrétting, vélar í vinnuhæð
Loft fylgja þakhalla, innfelld ljós. 
Bílskúr með epoxy á gólfi. 
Hjólageymsla og útisnúrur eru sameiginlegar. 

Húsið er steinsteypt á hefðbundinn hátt, einangrað og klætt að utan með litaðri álbáruklæðningu og sléttu áli. Allt burðarvirki: sökklar, botnplata, útveggir og gólfplötur er staðsteypt, járnbent steinsteypa.


Nánari upplýsingar veitir:
Soffía Sóley Magnúsdóttir  löggiltur fasteignasali [email protected]  / sími 846-4144


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.  Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.



 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.