Tröllakór 16 , 203 Kópavogur
77.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
108 m2
77.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2006
Brunabótamat
61.260.000
Fasteignamat
75.800.000

DOMUSNOVA fasteignasala og Margrét Rós lgf. kynna í sölu rúmgóða og fallega 3ja herbergja íbúð með sér inngangi af svölum á fjórðu og efstu hæð í fallegu lyftufjölbýli að Tröllakór 16, í Kópavogi. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu. Birt stærð skv. fasteignaskrá HMS er 108,7 m2, þarf af er 7,5 m2 sér geymsla í kjallara. Eignin skiptist í forstofu, sjónvarpshol, stofu/borðstofu og eldhús í opnu rými, rúmgóðar svalir til suðurs með svalarlokun, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús innan íbúðar ásamt geymslu í kjallara. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós lgf. í s. 856-5858 eða [email protected]

Um er að ræða glæsilega og vel staðsetta eign í Kórahverfi einu vinsælasta hverfi Kópavogs. Stutt er í helstu þjónusta og verslanir. Leik- og grunnskólar eru í göngufæri ásamt íþróttaaðstöðu í Kórnum og sundlaugin í Salahverfi eru í næsta nágrenni. Góðar almenningssamgöngur eru í gegnum hverfið. Fallegar gönguleiðir um hverfið og stutt í náttúruna til að njóta útiverunnar. Einstök eign í fallegu fjölbýlishúsi.
 
*** Smelltu hér til að fá söluyfirlitið sent ***

Nánari lýsing:
Forstofa: Rúmgóð með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Stórt alrými: Bjart og rúmar vel samliggjandi sjónvarpshol, stofu, borðstofu og eldhús. Allt rýmið er parketlagt með gegnheilu viðarparket.
Stofa/borðstofa: Í björtu alrými með gólfsíðum gluggum á allri suðurhliðinni og er útgengt á rúmgóðar suður svalir með svalarlokun.
Eldhús: Rúmgott og fallegt í opnu rými, innrétting með góðu skápaplássi ásamt innbyggðri uppþvottavél og ísskáp og færanlegri eldhúseyju.
Svefnherbergi I: Með fataskáp og parket á gólfi.
Hjónaherbergi II: Rúmgott með stórum fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi: Snyrtileg innrétting, upphengt salerni, inngeng sturta og handklæðaofn. Flísalagt hólf í gólf.
Þvottahús: Innan íbúðar, með hillum á vegg, borð og skolvask.
Geymsla: Sérgeymsla (7,5 m2) í sameign í kjallara.
Bílastæði: Sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu fylgir eigninni merkt B21. Einnig er sameiginleg dekkjageymsla.
Sameign: Stigagangur er sérlega snyrtilegur og er nýlega endurgerður á smekklegan hátt. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er innaf sameignargangi.
Lyftuhúsið: Liggur utan á húsinu og gengið inn í íbúðir af svalargangi, aðeins þrjár íbúðir hæðinni.

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 856-5858 / [email protected]
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s.773-3532[email protected]


VILTU VITA HVERS VIRÐI ÞÍN FASTEIGN ER Í DAG? BÓKA FRÍTT FASTEIGNAVERÐMAT
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR TIL AÐ LESA UMSAGNIR VIÐSKIPTAVINA
KÍKTU Í HEIMSÓKN Á SÍÐUNA MÍNA HÉR


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.