Kaldakinn nr. 13 , 851 Hella
29.900.000 Kr.
Sumarhús
3 herb.
94 m2
29.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2008
Brunabótamat
20.850.000
Fasteignamat
20.550.000

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:

Virkilega vel við haldið sumarhús með sólskála á fallegri og gróinni eignarlóð með gestahúsi, glerhúsi utanum heitan pott, verönd og góðu bílastæði.

Sumarhúsið er staðsett um 78 km frá Reykjavík, beygt upp á landveg (26) af þjóðveigi 1 og af honum inn að Kaldakinn móti vestri.

SELJENDALÁN FYRIR HLUTA KAUPVERÐS Í BOÐI MEÐ VEÐI Í EIGNINNI.


Eignin samanstendur af aðalhúsi með einu svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og tengi fyrir þvottavél, góðu alrými með eldhúsi/stofu/borðstofu, sólskála, gestahús með einu svefnherbergi er stakstætt, verönd með glerhúsi utanum heitan pott, góðar geymslur á verönd og gott bílastæði. Lóðin er gróin,  2502 fm eignarlóð og skjólsæl.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax!

Birt stærð húss skv. skráningu hjá fasteignaskrá er 47,7 fm en hefur verið stækkað og er um 75 fm alls í dag.

Gestahúsið er til viðbótar um 15 fm, glerhús utan um heita pottinn er u.þ.b. 12 fm og geymslur á palli í kringum 7 fm samtals og eru því upptalin óskráð rými utan skráðra fermetra u.þ.b. 59 fm alls.

Húsið var byggt 2008 upphaflega og hluti viðbóta kom í kringum 2017, standa húsin á timburstaurum.

Kynding er bæði með rafmagnsofnum en í aðalhúsi er einnig loft í loft varmadæla til kyndingar. 120 lítra hitakútur er fyrir heitt vatn og heitur pottur er rafmagnskynntur. 

Rafmagnskostnaður er að rokka á bilinu 15.000 - 17.000 kr á mánuði að meðaltali.

Í bæði aðalhúsi og gestahúsi er harðparket á gólfum. Sturta er flísalögð og tengi fyrir þvottavél á baðherberginu. Gestahúsið er eitt opið rými.

Allt innbú getur fylgt með utan persónulegra muna skv. nánara samtali.

Upplýsingar gefur: 
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.