Gnoðarvogur 56 , 104 Reykjavík (Vogar)
78.900.000 Kr.
Hæð/ Hæð í fjórbýlishúsi
3 herb.
98 m2
78.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1958
Brunabótamat
40.400.000
Fasteignamat
68.700.000

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:

Falleg og björt jarðhæð með sér inngangi í Vogahverfinu í Reykjavík.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax!

Um er að ræða 98,5 fm jarðhæð með sérinngangi, forstofu, eldhúsi, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi með baðkari og sturtu, rúmgóðri stofu með útgengt á sérafnotareit ásamt því að innangengt er í geymslu og sameiginlegt þvottahús.

Eignin hefur fengið jafnt og gott viðhald síðustu árin, eldhúsgluggi endurnýjaður nýlega, aðrir gluggar í góðu standi og nýlega málaðir. Vatnslagnir voru endurnýjaðar frá grind og út í götu og frárennsli fóðrar fyrir u.þ.b. ári síðan. Rafmagn og tafla eru ekki upprunaleg og þak var endurnýjað 2019 (pappi, járn, rennur og kantur).

Búið að setja gólfhita í öll gólf íbúðar utan við baðherbergi.

Nánari lýsing:
Sérinngangur - á austurhlið hússins.
Forstofa - flísalögð og með fatahengi.
Eldhús - var endurnýjað fyrir nokkrum árum, flísar á gólfi, bjartur eldhúsgluggi, pláss fyrir einfaldan ísskáp, tengi fyrir uppþvottavél og gott rými fyrir eldhúsborð.
Svefnherbergi - rúmgott, bjartur og stór gluggi, parket á gólfi, ekki fataskápur.
Stofa/borðstofa - mjög björt og rúmgóð, parket á gólfi og útgengt út á hellulagðan sérafnotareit í garði með skjólveggjum.
Hjónaherbergi - mjög rúmgott, góður fataskápur, parket á gólfi og bjartur gluggi.
Baðherbergi - með innréttingu með vaski, baðkari með sturtu, upphengdu klósetti, flísar á gólfi og veggjum.
Geymsla - sem búið er að opna inn í úr íbúð og úr henni innangengt fram á sameign þar sem er sameiginlegt þvottahús.

Fallegur og skjólgóður garður í sameign, staðsetning mjög góð miðsvæðis, stutt á skóla og leikskóla ásamt allri helstu þjónustu í göngufæri.

Upplýsingar gefur: 
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.