Erluás 24 , 221 Hafnarfjörður
149.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á tveimur hæðum
6 herb.
208 m2
149.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2002
Brunabótamat
94.700.000
Fasteignamat
127.800.000

DOMUSNOVA OG INGUNN BJÖRG KYNNA EINSTAKLEGA GLÆSILEGT OG VANDAÐ 2O8 FM  ENDARAÐHÚS Á TVEIMUR HÆÐUM MEÐ ÓVIÐJAFNANLEGU ÚTSÝNI VIÐ ERLUÁS 24 Í HAFNARFIRÐI. SÉRSMÍÐAÐAR INNRÉTTINGAR HANNAÐAR AF RUT KÁRADÓTTUR. RÚMGOTT ALRÝMI, ÞRJÚ - FJÖGUR SVEFNHERBERGI, TVÖ BAÐHERBERGI, ÞVOTTAHÚS, BÍLSKÚR MEÐ FLÍSUM Á GÓLFI. MJÖG RÚMGOTT. MJÖG SKEMMTILEG LÝSING Í ÖLLU HÚSINU. HELLULAGT BÍLAPLAN MEÐ HITALÖGN OG RAFHLEÐLSUSTÖÐ, PLÁSS FYRIR FIMM BÍLA. TVENNAR SVALIR SEM SNÚA TIL SUÐVESTURS, TIMBURVERÖND SEM SNÝR TIL SUÐURS, VESTURS OG NORÐAUSTURS.
Innréttingar í eldhúsi á  baðherbergjum og sérsmíðaðar einingar eru úr hnotu hannaðar af Rut Káradóttur. Gólfefni eru gegnheilt plankaparket úr hnotu og flísar. Falleg innbyggð lýsing með dimmerum í flestum rýmum.  
Einstök eign sem vert er að skoða!

Ath! EIGNIN GÆTI VERIÐ LAUS FLJÓTLEGA.


VINSAMLEGA BÓKIÐ SKOÐUN Á : [email protected] eða í síma 856 3566. 
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / [email protected]


Nánari lýsing eignar: 
Fyrsta hæð: 
Forstofa: Rúmgóð,flísalagt gólf, fataskápur.
Hol / Sjónvarpsrými: Rúmgott sjónvarpshol með sérmíðuðum hillum úr hnotu. Flísalagt gólf. Útgengt á verönd.
Barnaherbegi 1: Rúmgott með gegnheilu hnotuparketi á gólfi. fataskápur. 
Barnaherbergi 2:  Rúmgott með gegnheilu hnotuparketi á gólfi. fataskápur.
Baðherbergi 1: Flísalagt í hólf og gólf. Walk inn sturta, innrétting úr hnotu, háskápur, upphengt salerni. Gluggi með opnanlegu fagi. 
Þvottahús: Mjög rúmgott. Stór innrétting með efri og neðri skápum, vaski og mjög rúmgóðum háskápum. Gluggi með opnanlegu fagi. Útgengt út á verönd.
Bílskúr: Innangengt er í 26,4 fm bílskúr úr þvottahúsi. Flísar á gólfi. Heitt og kalt vatn. Hitalögn í plani, rafhleðslustöð. 
Verönd: Tvennar rúmgóðar verandir með skjólveggjum, gólfborð úr harðvið. Verandir snúa til suðurs, vesturs og austurs. 

Önnur hæð: 
Alrými: Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu alrými. Mjög rúmgott og bjart rými. Mikil lofthæð. Gegnheilt hnotuparket á gólfi í bland við flísar. Sérsmíðaðar innréttingar, eldhús, sjónvarpsskenkur og skenkur við stiga. Óviðjafnanlegt útsýni að Snæfellsjölki ásamt einstakri sjávar og fjallasýn. Útgengi á tvennar svalir sem snúa til suðurs ( 17,7 fm ) og vesturs(  4,6 fm) . 
Eldhús: Falleg og vönduð sérsmíðuð innrétting, hönnuð af Rut Káradóttur, úr hnotu með glæsilegri frístandandi eyju. Nýlegar ljósar steinborðplötur frá Granítsmiðjunni. Nýlegt 80 sm span helluborð frá Miele í eyju. Borðplata á eyju er að hluta úr steini og að hluta úr hnotu. Nýleg uppþvottavél, einnig frá Miele, bakaraofn í vinnuhæð. Vaskur og blöndunartæki með útdraganlegum barka voru endurnýjuð á sama tíma og steinn á borðplötum. Nýlega var bætt við kaffibar og vínkæli.
Skrifstofa:   Fínt vinnurými með sérsmíðuðum hillum úr hnotu. Hnotuparket á gólfi. Auðvelt að breyta í fjórða svefnherbergið. 
Hjónaherbergi: Bjart og rúmgott, hnotuparket á gólfi, rúmgóður fataskápur með lýsingu. Veggur fyrir aftan hjónarúm er sérhannaður af Rut Káradóttur.  Útgengt á 17.7 fm suðvestur svalir. 
Baðherbergi: Baðkar, fín innrétting úr hnotu, granítborðplata, efri skápar hnota og speglaframhlið, handklæðaofn, upphengt salerni.  
Svalir: Úr alrými er gengið út á 17, 7 fm svalir sem snúa til suðvesturs og á aðrar 4,6 fm svalir sem snúa til norðvesturs.   

Ath! Húsið er ekki skv. upprunalegum teikningum. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.