Æsuborgir 7 , 112 Reykjavík (Grafarvogur)
135.000.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á tveimur hæðum
7 herb.
189 m2
135.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1996
Brunabótamat
86.050.000
Fasteignamat
122.800.000
Opið hús: 13. maí 2024 kl. 17:00 til 17:30.

Opið hús: Æsuborgir 7, 112 Reykjavík. Eignin verður sýnd mánudaginn 13. maí 2024 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:

Vel staðsett parhús á tveimur hæðum með einstöku útsýni neðst við Grafarvoginn í Reykjavík.

Smelltu hér til að skoða kynningarmyndband af eigninni!

Eignin samanstendur í dag af forstofu, eldhúsi, mjög stóru stofurými ásamt borðstofu á efri hæð, gestasnyrtingu og bílskúr. 

Á neðri hæð eru í dag þrjú svefnherbergi, fataherbergi, hol, þvottahús, baðherbergi með bæði baðkari og stakstæðri sturtu.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax!

Eldhús hefur verið endurnýjað að miklu leiti og skv. upplýsingum frá eigendum er þak, gluggar og ytra birði upprunalegt en í góðu viðhaldi.

Gólfefni á rýmum er parket og flísar, stigi milli hæða er parketlagður.

Gengið er af neðri hæð út í garð og í honum er köld geymsla, útisturta, heitur pottur og gott leiksvæði með grasi.

Svalir eru á móti norðri og austri (útsýni), við inngang er gott setusvæði með góðu skjóli á móti suðri.

Efri hæðin er skráð 92,7 fm og neðri hæð 76,8 fm.

Bílskúr er á efri hæð, innangengt í hann úr forstofu og er stærð hans um 20 fm að stærð.

Gott steypt bílaplan með hitalögn.

Mögulegt er að minnka stofurými á efri hæð og stúka af viðbótarsvefnherbergi ásamt því að hægt væri að bæta við svefnherbergi á neðri hæð.

Húsið er með steyptum grunni og plötu, neðri hæð úr permaform steyptueiningum og efri hæð er byggð úr timbri.

Æsuborgir er lítil fjölskylduvæn gata, stutt er í leikskóla, skóla og upp í þjónustukjarnann við Spöngina.

Upplýsingar gefur: 
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.