Jöfursbás 7c - 102 , 112 Reykjavík (Grafarvogur)
81.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
92 m2
81.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2023
Brunabótamat
59.960.000
Fasteignamat
68.950.000

***DOMUSNOVA KYNNIR * ÍBÚÐ VIÐ SJÁVARSÍÐUNA *** LAUS STRAX ***

Jöfursbás 7C, Reykjavík - íbúð 0102.  3ja herbergja íbúð íbúð 92,6fm. á fyrstu hæð í lokuðu stigahúsi, þar af geymsla 9,2fm. (merkt 0018) í kjallara ásamt bílastæði í lokuðum bílakjallara merkt B039.
Íbúðin er skemmtilega hönnuð með góðu svefnherbergi.  Gólfhiti í allri íbúðinni. Sérafnotaflötur móti hafi út frá stofu klæddur Bambus við.   


Íbúðirnar í húsinu eru samtals 20 talsins og einungis örfáar óseldar í þessu glæsilega húsi við sjávarsíðuna.  
Allar upplýsingar inn á: www.gufunesid.is

Innanhúss hönnuður
hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum.  Parket og flísar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.

Íbúðin er með aukinni lofthæð yfir 280cm.
Lýsing íbúðar:

Forstofa rúmgóð og gengt henni innbyggðum fataskáp 
Eldhús með sjávarútsýn opið inn í stofu með sérsmíðaðri innréttingu frá Voke sem nær til lofts.  Innrétting er vönduð með granit borðplötu.
Stofa með gólfíðum glugga og útgengt á sérafnotaflöt íbúðar með stórbrotnu útsýni til sjávar.
Baðherbergi flísalagt bæði gólf og veggir með vandaðri innréttingu með granitborðplötu.  Tenging fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baði.
Hjónaherbergi mjög rúmgott með góðum skápum sem ná til lofts.
Svefnherbergi # 2 er rúmgott með vönduðum fataskáp sem nær til lofts
Geymsla á sér geymslugangi í kjallara hússins
Hjóla-og vagnageymsla í kjallara
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar

Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni.
Leiðakerfi strætó tengist Gufunesi. 

Hverfið:
Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.
Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni.
Það er stutt í alla þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki.  Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla.  Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli.  Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan.


NÁNARI LÝSING:
HÖNNUÐIR: Húsin eru hönnuð af ARKÞING Arkitektum.  Mikill fjölbreytileiki er bæði á ytra útliti húsinss og í gerðum og stærðum á íbúðum. Mikið var lagt upp úr gæða efnisvali og góðum lausnum. 
HÚSIÐ: Húsið er  klætt að utan með álklæðningu og því viðhaldslítið. Gluggarnir eru vandaðir ál-tré gluggar frá Byko sem hafa það einkenni að vera með hátt einangrunargildi fyrir hita og hljóði.
ÍBÚÐIR:  Aukin lofthæð í flestum íbúðum, 280 cm og gólfsíðir gluggar víða.  Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar frá VOKE III
Crystal Diamond Polished Quartz steinn á borðplötum í eldhúsi og frá Tecnistone á baðherbergi. Rafmagnstæki eru af vandaðri gerð frá AEG.  Span hellurborð, Vifta útdraganleg AEG Ciak Led Veggofn.  Í íbúðum þar sem er eyja eru viftur af gerðinni AEG Airvorce-eyjuháfur Luna, hvítur.
Blöndunar- og hreinlætistæki, vaskur og salernisskál frá Duravit (Duravit D-Code og Duravit D-Neo Rimless).  Blöndunartæki eru öll í krómi frá Grohe
Íbúðirnar afhendast með vönduðu parketi á meginflötum en á baðherbergi eru vandaðar ljósgráar 60x60cm flísar frá EBSON
BÍLAKJALLARINN OG GEYMSLUR:  Bílastæði fylgir flestum íbúðum og góðar geymslur. 
SAMEIGINLEGUR GARÐUR:  Einstaklega fallegur og skjólgóður. Gróður og hellulagðir/steyptir gangstígar sem að hluta til eru með snjóbræðslu ásamt lýsingu. 
AFHENDING VIÐ KAUPSAMNING

Hafið samband við eftirfarandi fasteignasala til að skoða:
Margrét Rós Einarsdóttir lgfs., s 856-5858 eða [email protected]
Aðalsteinn Bjarnason lgfs., s. 773-3532 eða  [email protected]
Guðný Ösp Ragnarsdóttir lgfs., s. 665-8909 eða [email protected]
Oscar Clausen lgfs., s. 861-8466 eða [email protected]
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir lgfs.,  s. 856-3566 eða i[email protected]
Vilborg Gunnarsdóttir lgfs., s. 891 8660 eða [email protected]
Agnar Agnarsson lgfs., s. 820-1002 eða [email protected]
 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.
Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.