Skipasund 26 , 104 Reykjavík (Vogar)
74.900.000 Kr.
Fjölbýli
4 herb.
113 m2
74.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1953
Brunabótamat
45.750.000
Fasteignamat
71.250.000

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:

Einstaklega vel staðsetta hæð með suðursvölum, stórum bílskúr og tveimur bílsatæðum við bílskúrinn.

Eignin hefur fengið jafnt og gott viðhald í gegnum árin. Birt stærð séreignar er 113,7 fm alls, þar af er bílskúr tæpur 31 fm og íbúð ásamt geymslum um 83 fm.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax!

Húsið er með þremur eignarhlutum, sameiginlegum inngagni og gengið upp einar tröppur. Skiptist eignin í forstofu, tvö til þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eina til tvær stofur og eldhús. Sameiginlegt þvottahús er í kjallara ásamt tveimur geymslum.

Bílskúrinn er stór, um 31 fm og framan við bílskúrinn er rúmgott steypt bílastæði sem rúmar auðveldlega 2 bíla ásamt fallegum grónum garði sem er í sameign eigenda hússins.

Nánari lýsing:
Forstofa - gengið inn í sameiginlegt andyri og þegar inn er komið í íbúðina er gangur með fataskáp og hengi, flísar á gólfi.

Baðherbergi - er flísalagt í hólf og gólf, wc, innrétting með vaski og sturta.

Hjónaherbergi - er rúmgott með parketi á gólfi.

Svefnherbergi - er rúmgott með parketi á gólfi og útgengt þar á suðursvalir.

Eldhús - er með L innréttingu, efri og neðri skápum, helluborð og bakaraofn, gufugleypir, tengi fyrir uppþvottaél og pláss í innréttingu fyrir einfaldan ísskáp, flísar á gólfi.

Stofur - eru tvær, hægt að breyta annarri í þriðja svefnherbergið, rúmgóðar og parket á gólfum.

Bílskúrinn - er rúmgóður, hliðstæð inngönguhurð ásamt bílskúrshurð.

Kjallari - er með sameiginlegri aðstöðu fyrir þvottavél, aðgengi að tveimur geymslum.

Lóð - er í sameign, mjög gróin og stendur á horni Skipasunds og Hólsvegar.

Virkilega eiguleg og vel við haldin hæð með stórum bílskúr.

Staðsetning er góð og stutt í margvíslega þjónustu í göngufæri við eignina.

Upplýsingar gefur: 
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.