Drómundarvogur 6 , 104 Reykjavík (Vogar)
72.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
88 m2
72.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2021
Brunabótamat
59.960.000
Fasteignamat
72.600.000

Domusnova og Ingunn Björg kynna í sölu vel skipulagða og vandaða þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð ( frá götu framan við hús ) með yfirbyggðum svölum,  ásamt bílastæði í bílakjallara við Drómundarvog í Reykjavík. Um er að ræða íbúð sem skráð er 88,3 m2 að stærð skv. fasteignaskrá HMS þar af er 6,7 m2 geymsla í sameign. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús sem opið er við stofu, tvö herbergi, baðherbergi með þvottahúsi inn af, geymslu í kjallara auk sérmerkts bílastæðis í bílakjallara. Eignarhlutur íbúðar í húsinu er 1,49%. 

Vogabyggð er skjólsæl perla á höfuðborgarsvæðinu í nálægð við hafið og náttúruna. Frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í umhverfi sem býður bæði upp á borgarbrag og í senn sterka tengingu við náttúruna. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal. Þá er Laugardalurinn innan seilingar.

Nánari upplýsingar veitir: Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / [email protected]


Lýsing eignar:
Forstofa: Rúmgóður fataskápur. Harðparket á gólfi. 
Eldhús: Falleg innrétting með eyju. Ofn í vinnuhæð, span helluborð, háfur. Opið við stofu. Harðparket á gólfi. 
Stofa: Rúmgóð og björt með stórum gluggum, útgengt á yfirbyggðar svalir. Harðparket á gólfi. 
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott og bjart. Stór fataskápur. Harðparket á gólfi. 
Herbergi: Rúmgott og bjart. Fataskápur, harðparket á gólfi. 
Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir. Speglaskápur á vegg fyrir ofan vask, innrétting undir vaski, sturta með hertu gleri, upphengt salerni. 
Þvottahús: Gott þvottahús er inn af baðherbergi. Skápur fyrir þvottavél og þurrkara. Vaskur með skáp undir. Flísalagt gólf. Gluggi með opnanlegu fagi. 
Svalir: Notalegar yfirbyggðar svalir með timbri á gólfi. 
Bílastæði: Bílastæði í bílakjallara. Innangengt er úr bílakjallara í lyftu og stigahús. 
Geymsla:  6,7 m2 geymsla í sameign, ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu. 

Nánari upplýsingar veita:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / [email protected]
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.