DOMUSNOVA OG INGUNN BJÖRG KYNNA FALLEGT 253,4 FM, ÁTTA HERBERGJA PARHÚS Á TVEIMUR HÆÐUM ( ÞREMUR PÖLLUM ) VIÐ KLEPPSVEG 78. FRÁBÆRT FJÖLSKYLDUHÚS Í LAUGARDALNUM.Að sögn seljenda hefur eftirfarandi verið endurnýjað af þeim:* PVC DÚKUR SETTUR Á ÞAK 2020
* MÚRVIÐÐGERÐIR UTANHÚSS 2020
* HÚS MÁLAÐ AÐ UTANVERÐU 2021*
MÚRVIÐGERÐIR Á TRÖPPUM UTANHÚSS 2022
* GLUGGAR ENDURNÝJAÐIR Á FRAMHLIÐ EFRI HÆÐAR 2020
* GLUGGAR ENDURNÝJAÐIR Í TVEIMUR HERBERGJUM OG ANNAR AF TVEIMUR Í ÞVÍ ÞRIÐJA
* OFNAR ENDURNÝJAÐIR Í STOFU
* FORHITARI Á OFNAKERFI ENDURNÝJAÐURNánari upplýsingar veitir : Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / [email protected]Nánari lýsing eignar:
Neðri hæð: Forstofa: Mjög rúmgóð forstofa með fatahengi.
Herbergi 1: Rúmgott, fataskápur, parket á gólfi.
Herbergi 2: Rúmgott parket á gólfi.
Herbergi 3: Rúmgott herbergi sem í dag er nýtt sem geymsla.
Herbergi 4: Samanstendur af svefnherbergi, rými fyrir framan herbergi sem nýtt er sem lítil stofa, fataherbergi. Parket á gólfi. Ekki er full lofthæði í þessu rými.
Baðherbergi: Flísalagt að hluta, sturta, vaskur og salerni.
Köld útigeymsla er undir svölum sem að núverandi eigendur bættu við. Ekki var sótt um leyfi frá byggingarfulltrúa fyrir þessum breytingum. Pallur:
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með útgengi á suðursvalir. Gott skápapláss, parket á gólfi.
Herbergi 5: Rúmgott herbergi sem breytt hefur verið úr tveimur herbergjum í eitt. Hurð er til staðar og því auðvelt að breyta aftur í fyrra horf.
Baðherbergi: Flísalagt, baðkar, nýleg innrétting.
Efri hæð: Stofa: Mjög rúmgóð og björt stofa. Parket á gólfi.
Borðsstofa: Rúmgóð og björt í opnu rými með stofu.
Eldhús: Upprunaleg innrétting sem hefur verið máluð. Fínn borðkrókur.
Þvottahús: Mjög rúmgott þvottahús / búr, inn af eldhúsi.
Garður og lóð: Húsið stendur á 1266 fm lóð. Gróinn fallegur garður. Köld útigeymsla er undir svölum sem að núverandi eigendur bættu við.
Ekki var sótt um leyfi frá byggingarfulltrúa fyrir þessum breytingum.
Bílskúr: 20 fm bílskúr. Hellulagt bílaplan fyrir framan bílskúr, einnig hellulagt bílaplan fyrir framan hús þar sem pláss er fyrir þrjá bíla.
Ath. Húsið er ekki skv. upprunalegum teikningum. Nánari upplýsingar veita:Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / [email protected]
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.