***DOMUSNOVA KYNNIR * 4RA HERBERGJA ÍBÚÐ VIÐ NJÁLSGÖTU***4ra herbergja íbúð á 2. hæð í 9 íbúða fjölbýlishúsi.
Birt stærð íbúðar 101,8fm., þar af geymsla í kjallara 5,5fm.
Sjaldgæf retró íbúð í hjarta miðbæjarins. Eignin er að mestu upprunaleg og afar vel umgengin.
Stigagangurinn er með einstökum spíral löguðum stiga. Upprunalegt og listrænt veggfóður í bakgrunni.
Nánari lýsing:Anddyri er flísalagt með innbyggðum skápum.
Stofan og borðstofan eru rúmgóðar og bjartar með
frönskum svölum til suðurs. Teppi á gólfum. Hægt er að loka stofum með
tekkhurðum með
sandblásnu gleri.Eldhús með dúk á gólfi og máluð upprunaleg innrétting. Borðkrókur er rúmgóður og gluggi á eldhúsi.
Hjónaherbergi er með línóleum dúk á gólfi. Innbyggður skápur og svalir til norðurs.
Svefnherbergi #2 með línóleum dúk á gólfi og færanlegum skáp.
Svefnherbergi #3 með línóleum dúk á gólfi og færanlegum skáp.
Baðherbergi er dúklagt bæði gólf og veggir með ljórsri innréttingu og baðkari.
Innbyggð lítil geymsla við hlið baðherbergis
Upprunalegar tekkhurðar í allri íbúðinni.
Sér hiti er fyrir íbúðina.
Í kjallara eru:Tvö sameiginleg þvottahús með góðri þurrkaðstöðu og sér þvottavélatengi fyrir hverja íbúð.
5,5 fm sérgeymsla með hillum.
Aðstaða til að geyma hjól og útgengi á baklóð.
Öll sameign og lóð mjög snyrtileg og vel um gengið.
Íbúðin er staðsett á eftirsóttum en rólegum stað í miðborginni. Leikskóli er í 3 mín. göngufjarlægð og stutt í
grunn- og framhaldsskóla. Íbúðin býður uppá mikla möguleika ma. að breyta henni í 5 herb. ÍbúðNánari upplýsingar veita:Skrifstofa / s.527-1717 /
[email protected]Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 /
[email protected]Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.