Domusnova og Haukur Páll Ægisson, löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Stórholt 28 íbúð 101 þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð með sameiginlegum inngangi, auka studióherbergi er í kjallara með litlum eldhúskrók sem er nú þegar í útleigu til lok septembers. Húsið var steypt árið 1943. Samkvæmt HMS er eignin skráð 80.6m² og skiptist hún eftirfarandi. Stærð íbúðar er 60.7m², geymsla í kjallar er 3.2m² og studióherbergi er 16.7m².
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi, studióherbergi í kjallara og sérgeymslu. Í sameign í kjallara er að finna lítið baðherbergi með salerni og sturtuaðstöðu, þvottaherbergi, þurrkherbergi og kalda útigeymsla undir stiga. Nánari lýsing.Forstofa: með skáp og dökkum flísum á gólfi.
Stofa: björt með parketi á gólfi.
Eldhús: með dökkum viðar neðri skápum, hvítum efriskápum og ljósri borðplötu. Bláar flísar á milli eldhúsinnréttingu og flísar á gólfi.
Svefnherbergi I Bjart með parketi á gólfi og fataskáp
Svefnherbergi II: Bjart með góðum glugga, skáp og parket á gólfi.
Baðherbegi: með sturtuklefa, upphengdu klósetti, hvítri innréttingu og flísum í hólf og gólf.
Kjallara herbergi: er með litlu eldhúsi, parket á gólfi (16,7 fm), lítil sérgeymsla, sameiginleg klósettaðstaða, sameiginlegt þvottahús, köld útigeymsla.
Fyrirhugað fasteignamat næsta árs er 54.050.000Nánari upplýsingar veita:Haukur Páll Ægisson löggiltur fasteignasali / s.7729970 / [email protected]Skrifstofa / s.527-1717 /
[email protected]Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.