Oscar Clausen lgf. og Domusnova fasteignasala kynna: Vel skipulögð 2ja herb íbúð á þessum vinsæla stað í Reykjavík. Um er að ræða eign við Öldugötu 51, á jarðhæð í fjórbýlishúsi og er íbúðin skráð 47,8fm. Íbúðin skiptist í stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Hér er um að ræða eign í fallegu húsi í Vesturbænum sem hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðinni. íbúðin getur verið laus við kaupsamning Forstofa: komið er inn í opið rými með flísum á gólfi.
Eldhús: í eldhúsinu er ljós innrétting með viðar borðplötu, flísar eru á milli efri og neðri skápa. Góður gluggi er á eldhúsinu og flísar á gólfi.
Stofa: stofan er rúmgóð. Parket er á gólfi og fallegur gluggi.
Baðherbergi: baðherbergi er flísalagt hólf í golf, sturta, skápur er fyrir ofan vask og upphengt salerni.
Svefnherbergi: herbergið er með dúk á gólfi og lausum fataská sem fylgja með.
Þvottaaðstaða: sameiginlegt þvottahús er á hæðinni.
Öldugatan er ein af þessum fallegu götum í Vesturbænum sem eru einkennandi fyrir „gömlu“ Reykjavík. Staðsettningin eftirsótt og stuttur göngutúr í alla þjónustu, skóla, leikskóla, verslun og menningu sem miðborg Reykjavíkur hefur upp á að bjóða.
Nánari upplýsingar veita:
Oscar Clausen löggiltur fasteignasali / s.861 8466 / [email protected]Skrifstofa / s.527-1717 /
[email protected] Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.