DOMUSNOVA og Gunnar Vilhelmsson lgf. kynna: Engjadalur 2, íbúð 205, efri hæð. 119,8fm, 2 bílastæði, sér inngangur, 3 svefnherbergi, leikvöllur á sameign. Frábær fjölskyldueign og stutt í skóla og aðra þjónustu.
Lýsing eignar:Forstofa: Gengið er inn í rúmgóða forstofu með fataskápum, flísar á gólfi.
Þvottahús/geymsla: Gengið er inn í þvottahús/geymslu frá forstofu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa, gengið er út á góðar suðursvalir frá stofu, parket á gólfi.
Eldhús: Eldhúsið er opið inn að stofu og er með góðu skúffu og skápaplássi. parket á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, góð vaskinnrétting, vegghengt salerni og baðkar með sturtuaðstöðu.
Svefnherbergi: Í íbúðinni eru 3 svefnherbergi, 2 rúmgóð barnaherbergi með fataskápum, og hjónaherbergi er rúmgott með sér fataherbergi. Parket á öllum herbergjum.
Nánari upplýsingar veita:Gunnar Vilhelmsson löggiltur fasteignasali / s.776 3848 /
[email protected]Skrifstofa / s.527-1717 /
[email protected]Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
- Nýtt - Eignin er nýbygging.
- Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
- Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
- Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
- Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.