Domusnova og Gunnar Vilhelmsson lgf. kynna: Birkiteigur 13, 230 Reykjanesbær. 163,9fm einbýli, þar af bílskúr sem er 43,9fm. 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi og stór garður.
Bókið skoðun hjá [email protected]
Lýsing eignar:Á fyrstu hæð er gengið inn um aðalinngang að framan inn í hol. Á hæðinni er rúmgóð stofa, borðstofa, eldhús, baðherbergi og þvottaaðstaða. Jarðhæðin er flísalögð og með útgang út í garð frá borðstofu og einnig frá þvottarými út á sólpall á suðurhlið hússins. Baðherbergi á jarðhæð er nýlega uppgert. Gengið er upp steyptan stiga, upp á aðra hæð hússins. Gangur á efri hæð er flísalagður og með aðgengi upp á risloft. Á hæðinni eru 4 svefnherbergi sem eru með parket á gólfi. Baðherbergi er flísalagt með baðkari, vaskinnréttingu og salerni.
Bílskúr er mjög rúmgóður með nýlegu þakjárni. breiðari bílskúrshurð fylgir með húsinu.
Nánari upplýsingar veita:Gunnar Vilhelmsson löggiltur fasteignasali / s.776 3848 / [email protected]Skrifstofa / s.527-1717 /
[email protected]Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
- Nýtt - Eignin er nýbygging.
- Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
- Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
- Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
- Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.