Domusnova og Gunnar Vilhelmsson lgf. kynna:
Víkurbraut 17 íbúð 303 (3.hæð)Íbúð 303 er 4.herbergja íbúð 125,2m² auk 7,3m² sérgeymslu í sameign, samtals birt flatarmál 132,5m². Eigninni fylgja 9,5m² yfirbyggðar svalir og sérmerkt stæði (0303-B09) í bílageymslu að auki.
Íbúðin skilast fullbúin að innan með gólfefnum og tækjum.
Veggir og loftVeggir eru annars vegar tvíklæddir gips veggir og hins vegar staðsteyptir útveggir einangraðir að utan. Allir veggir eru sandspartlaðir og málaðir með hvítri málningu. Loft eru slípuð, sandspörtluð og máluð hvít.
GólfefniÍbúðin eru með flísum á gólfum baðherbergis og þvottahúss, annars staðar er einnar stafa gæða harðparket.
FataskáparFataskápar eru í forstofu og svefnherbergjum, allir fataskápar ná upp í loft.
Hurðir Innihurðir og karmar eru hvítar með viðaráferð.
Inngangshurð eru B30 með felliþröskuld.
EldhúsMeð Corian borðplötum og AEG tækjum.
BaðherbergiInnréttingin er dökk með Corian borðplötu og handlaug. Innbyggt blöndunartæki.Góður spegill fyrir ofan vask. Salernið er hvítt með innbyggðum vatnskassa. Glæsilegur flísalagður sturtubotn með niðurfallsrennu og glerhlið úr hertu gleri. Hitastýrð blöndunartæki með sturtusetti.
Veggir eru flísalagðir upp í ca. 2 metra.
Ljóskúpull í lofti og baklýstur spegill.
ÞvottahúsInnrétting með stálvaski og einnar handar blöndunartæki. Gólfið er flísalagt með eins flísum og á baðherbergisgólfi.
Ljóskúpull í lofti.
Þvottavél og barkalaus þurrkari fylgja með.
Gólf og hitiÖll gólf eru “tvöföld” þ.e.a.s. 20sm steypt burðarplata, hljóð og hitaeinangrun ásamt gólfhitakerfi þar yfir er ílögn úr anhydrit. Þannig næst mjög góð hljóðeinangrun á milli hæða.
Hitakerfið er með varmaskipti og uppblöndun í hverri íbúð. Sjálfstæð hitastýring er fyrir hvert rými.
SvalirHandrið úr áli með hertu öryggisgleri þar ofan á kemur glerlokun á brautum einnig með hertu öryggisgleri. Hitaspírall er í svalagólfi.
Nánari upplýsingar veita:Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]
Gunnar Vilhelmsson löggiltur fasteignasali / s.776 3848 / [email protected]Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.