Borgahella 13 , 221 Hafnarfjörður
20.900.000 Kr.
Atvinnuhús/ Lager - Iðnaðarhúsnæði
0 herb.
42 m2
20.900.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
2022
Brunabótamat
13.600.000
Fasteignamat
14.450.000

Domusnova kynnir vel staðsett geymslu- eða lagerrrými við Borgahellu 13, Hafnarfirði.  Birt stærð 42,5fm með möguleika á 13,8fm millilofti. Bil merkt R.

Nýlegt, glæsilegt atvinnu-frístunda- og/eða hobbý rými til sölu á malbikaðri afgirtri lóð með lokuðu rafstýrðu hliði við Borgarhellu 13/15, Hafnarfirði.  Samtals eru 38 bil á sameiginlegri lóð.  Möguleiki á milligólfi allt að 13,8fm. að stærð.
Stærð á bili: Lengd 9,23m. x breidd 4,60m. Fasteignin er byggð úr límtré ásamt burðarvirki þess. Þak og útveggir eru klæddir með vottuðum stál samlokueinignum frá Límtré/Vírnet með harðpressaðri steinull.
Vegghæð við útvegg er 3,5 metrar og 4,7 metrar innst í hverju bili.   Innkeyrsluhurð 3,0 x 2,5 metrar. Gólf eru vélslípuð og máluð. Skolvaskur og blöndunartæki eru í hverju bili.  Niðurfall í gólfum. Hitaveita er sameiginleg fyrir öll geymslurýmin og er húsnæðið hitað upp með hefðbundnu ofnakerfi.  Varmaskiptir er við inntak heita vatnsins.Lagnir fyrir salernisaðstöðu eru tilbúnar til tengingar Innkeyrsluhurð er 3 metra há og inngönguhurð við hlið hennar fyrir hvert bil. Rafmagnsmótor á innkeyrsluhurð með fjarstýringu.  Raflögn  með 3ja fasa rafmagni og rafmagstöflu fyrir hvert bil. Lýsing í loftum frágengin. Lóð er fullfrágengin, malbikuð, girt af og með sjálfvirku rennihliði með fjarstýringu.  Sorptunnugeymsla er á lóð. Sameiginlegt salernisaðstaða í mhl.01 ásamt inntaksrými. Bílastæði á lóð eru 16 og þar af 2 fyrir hreyfihamlaða .  Hægt verður að koma upp rafhleðslustöð.
Einingin er í útleigu og tekur kaupandi við leigusamningi. 

Nánari upplýsingar veita:
Árni Helgason fasteignasali / s.6634290 / [email protected]
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.