Hábær 40 , 110 Reykjavík (Árbær)
116.900.000 Kr.
Einbýli
4 herb.
180 m2
116.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1968
Brunabótamat
66.920.000
Fasteignamat
104.800.000

DOMUSNOVA fasteignasala kynnir í sölu snoturt einbýlishús á eftirsóttum stað í nálægð við Elliðaárdalinn. Um er að ræða einbýli sem er að hluta til á tveimur hæðum ásamt rúmgóðum bílskúr á lóð. Heildar fasteignin er skráð sem samtals 180,70 m2 að stærð skv. fasteignaskrá HMS og skiptist sem 140,80 m2 einbýlishús og 39,90 m2 bílskúr. Húsið skiptist í forstofu, hol, eldhús, borðstofu, stofu, sólstofu, baðherbergi, hjónaherbergi, svefnherbergi á efri hæð ásamt herbergi, þvottaherbergi og gangi á neðri hæð.  Sólstofa er upphituð og einangruð en er ekki talin inn í heildarfermetra, skv. HMS. Lóðin er alls 705 m2 og er vel um hirt og snyrtileg. Alls eru fjórir sólpallar í kring um húsið eða tveir framan við hús og og tveir aftan við hús, þar af einn stór. Að auki er stór hluti hellulagður og blómabeð afgrit með tréverki. Geymsluskúr er einnig á lóð.

HÉR ER SPENNANDI MÖGULEIKI Á AÐ EIGNAST EINBÝLI Í EFTIRSÓTTU HVERFI Í ÁRBÆ ÞAR SEM STUTT ER Í ALLA HELSTU ÞJÓNUSTU ÁSAMT LEIK- OG GRUNNSKÓLA. ÝMSAR VINSÆLAR GÖNGU OG HJÓLALEIÐIR OG ÚTIVISTASVÆÐI ÁSAMT NÁLÆGÐ VIÐ NÁTTÚRUPERLUNA Í ELLIÐAÁRDAL.

* * *  SMELLIÐ HÉR TIL AÐ BÓKA SKOÐUN  * * *


Nánari lýsing á eignarhutum: 
- EFRI HÆÐ -
Forstofa:
Með flísum á gólfi og stórum fataskáp.
Hol: Rúmgott hol með parketi á gólfi sem tengir saman helstu vistarverur og nýtist að hluta sem borðkrókur við eldhús.
Eldhús: Með ljósri innréttingu og flísum á vegg undir efri skápum. Stafaparket á gólfi. Gluggar í tvær áttir. Stigi úr eldhúsi niður á neðri hæð.
Borðstofa: Efri hluti stofu er nýttur sem borðstofa. Parket á gólfi og gluggi. Hægt er að loka á milli borðstofu og hols með harmonikkuhurð.
Stofa: Björt með stórum gluggum og aukinni lofthæð. Útgengi í sólstofu og út í garð/verönd. Parket á gólfi og ljós panelklæðning í lofti.
Sólstofa: Upphituð með miðstöðvarofni og tvöfallt gler í gluggum. Ekki talin inn í heildarfermetra eignar.
Baðherbergi: Snyrtilegt og nýlega standsett (2019) með vask innréttingu og veggskápum. Inngeng sturta með glerskilrúmi ásamt upphengdu salerni með innbyggðum vatnskassa og handklæðaofn á vegg. Flísar hátt og lágt með gráum flísum á gólfi og ljósum flísum á veggjum.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með bæði innfelldum fataskáp með rennihurðum og standandi fataskáp með hurðum og spegli. Rúmur gluggi með opnanlegu fagi. Dúkur á gólfi.
Svefnherbergi: Innfelldur skápur með rennihurðum. Innfelldur skápur með hurðum. Rúmur gluggi með opnanlegu fagi. Dúkur á gólfi.

- NEÐRI HÆÐ -
Herbergi:
Með innfelldum skáp með hurðum. Lítill gluggi með opnanlegu fagi. Parket á gólfi.
Gangur: Með stiga upp á efri hæð og skápur með rafmagnstöflu. Parket á gólfi.
Þvottaherbergi: Með vaski og salerni. Tengi fyrir þvottavél. Opnanlegur gluggi og miðstöðvarofn.

- BÍLSKÚR -
Bílskúr stendur við hlið hússins og er með tvo innganga á hlið og gluggum. Bílskúrshurð er nýleg með sjálfvirkum opnara (h: 240, b: 270). Bílskúr var byggður árið 1998 og er klæddur með steníklæðningu. Hallandi þak er á skúrnum og loft hæð á bilinu 240-280 cm. Skúrinn er upphitaður og er með heitu og köldu neysluvatni.

- LÓÐ -
Lóðin er alls 705 m2 að stærð. Lóðin er vel um hirt og snyrtileg. Alls eru fjórir sólpallar í kring um húsið eða tveir framan við hús og og tveir aftan við hús, þar af einn stór. Að auki er stór hluti hellulagður og blómabeð afgrit með tréverki. Geymsluskúr er einnig á lóð.

* * *  SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SÆKJA SÖLUYFIRLIT  * * *

Allar nánari upplýsingar veita:
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali, í Félagi fasteignasala / s.773-3532 [email protected]
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali - Viðskiptafræðingur / s.856-5858 / [email protected]

VILTU VITA HVERS VIRÐI ÞÍN FASTEIGN ER Í DAG? BÓKA FRÍTT FASTEIGNAVERÐMAT

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.